Um félagsmiðstöðina Óðal
Í Borgarbyggð er starfrækt ein félagsmiðstöð fyrir 10-16 ára börn og ungmenni í sveitarfélaginu. Félagsmiðstöðin Óðal er staðsett í Borgarnesi á Gunnlaugsgötu 8b.
Fyrir hvað stendur félagsmiðstöðin?
Starf á vegum félagsmiðstöðva er í eðli sínu forvarnarstarf sem unnið er með viðhorf og atferli unglinga í átt til heilbrigðs lífsstíls og virkni í samfélaginu. Félagsmiðstöðvarstarfinu er jafnframt ætlað að styðja við félagsfærni, sjálfseflingu, sköpun og heilbrigði. Þátttaka í skipulögðu frístundastarfi í umsjá fagfólks í öruggu umhverfi hefur mikið forvarnargildi. Með því að bjóða börnum og ungmennum upp á jákvæð viðfangsefni í frítímanum með jákvæðum fyrirmyndum aukast líkur á því að þau kjósi heilbrigðan lífsstíl og forðist áhættuhegðun. Í félagsmiðstöðvastarfi er lögð áhersla á forvarnir gegn óæskilegri hegðun en í þeim reglum sem gilda í starfi Óðals er skýr afstaða tekin gegn allri vímuefnaneyslu og neyslu orkudrykkja sem og annarri neikvæðri og óæskilegri hegðun.
Hvað býður Óðal upp á?
Í Óðali er boðið upp á uppbyggilegt félagsstarf fyrir 10-16 ára börn og unglinga í Borgarbyggð. Áhersla er á fjölbreytt viðfangsefni svo að öll geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Unnið er í klúbbum, sértæku hópastarfi, opnu starfi og tímabundnum verkefnum. Við leggjum áherslu á virkt barnalýðræði í félagsmiðstöðinni og sér húsráð Óðals um að setja upp dagskrá og skipuleggja viðburði í samstarfi við starfsfólk. Meðal árlegra viðburða má nefna Æskulýðsballið, Söngkeppni Óðals og hópferð á SamFestinginn, uppskeruhátíð félagsmiðstöðva.